sunnudagur, júlí 16
Fyrst og fremst: Æi, hálf er nú lítið að frétta... svona listar eru að dúkka upp hér og þar, er ekki málið að vera með?
Ég hef? ( ) klesst bíl vinar/vinkonu (Það var í hina áttina...) ( ) stolið bíl (foreldranna) (X) verið ástfangin (X) verið sagt upp af kærasta/kærustu (X) faðmað einhvern ókunnugann (ég er skáti...) ( ) verið rekin/n (X) lent í slagsmálum (reyndar ekki í mörg ár - það þykir ekki sérlega mikið afrek að lemja mig...) ( ) læðst út meðan ég bjó ennþá heima hjá foreldrunum (X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki (voðalega er þetta persónulegt...) ( ) verið handtekin/n (ég er greinilega alltof rólegur!) (x) farið á blint stefnumót (já já - með blendnum tilfinningum og árangri) (X) logið að vini/vinkonu (sumt er bara fyrir mann sjálfan...) (X) skrópað í skólanum (it's almost an art-form) (X) horft á einhvern deyja ( ) farið til Canada ( ) farið til Mexico (X) ferðast í flugvél (who hasn't?) ( ) kveikt í mér viljandi (væri það ekki pínu skrítið?) ( ) liðið yfir þig (helv... nálægt því samt) ( ) borðað sushi (hah! Fat chance!) ( ) farið á sjóskíði (er á listanum...) (x) farið á skíði (skammast mín samt pínu fyrir það) (X) hitt einhvern sem ég kynntist á internetinu (X) farið á tónleika (x) tekið verkjalyf ( ) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna (það þyrfti nú að vera svona 1-10 skali á sumum þessara spurninga) (X) legið á bakinu úti og horft á skýin (X) búið til snjóengil (x) haldið kaffiboð (og ég drekk ekki einu sinni kaffi...) (X) flogið flugdreka ( ) byggt sandkastala (en ég hef smíðað upp bíla!) (X) hoppað í pollum (x) farið í ?tískuleik? (dress up) ( ) hoppað í laufblaðahrúgu (X) rennt mér á sleða (X) grátið ( ) svindlað í leik (ekki svo ég muni) (X) verið einmana (I'm only human...) (X) sofnað í vinnunni/skólanum (oftar en oft) ( ) notað falsað skilríki (enn og aftur... of rólegur...) (X) horft á sólarlagið (döh...) (X) fundið jarðskjálfta (X) sofið undir berum himni (ekkert sem toppar það) (X) verið kitlaður (don't you dare!!!) (X) verið rændur (Aðallega af gömlum vinnuveitanda) (X) verið misskilinn ( )klappað hreindýri/geit/kengúru (nei, en ég borðaði einu sinni ís í brauði...) (X) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi ( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla (X) lent í bílslysi (slys og ekki slys, eitthvað smávægilegt líkamstjón allavega) (X) verið með spangir/góm (X) liðið eins og ég passaði ekki inn í/þriðja hjól undir vagni ( ) borðað líter af ís á einu kvöldi (X) fengið deja vu ( ) dansað í tunglskininu (x)fundist þú líta vel út (maður á nú sína skárri daga eins og aðrir...) (X) verið vitni að glæp (t.d. þátttöku Íslands í innrásinni í Írak) (X) efast um að hjartað segði þér rétt til (til þess er það... að villa um fyrir heilanum.) ( ) verið gagntekinn af post-it miðum (ég er skrítinn, en common...) ( ) leikið mér berfættur í drullunni ( ) verið týndur (mjög teygjanlegt hugtak fyrir fjallageitur) (X) synt í sjónum (X) fundist ég vera að deyja (og vonað að það tæki fljótt af...) (X) grátið þig í svefn (hey - það er erfitt að vera ungur) (X) farið í löggu og bófa leik ( ) litað nýlega með vaxlitum (X) sungið í karaókí (hah - þessu áttirðu ekki von á!) (X) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki (X) hringt símahrekk (X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (X) stungið út tungunni til að ná snjókorni ( ) dansað í rigningunni (ég er skáti - ég dansa ekki) ( ) skrifað bréf til jólasveinsins (þeir voru nú þrettán í mínu ungdæmi) ( ) verið kysst/ur undir mistilteini (ekki svo ég muni - ég held ég hafi aldrei séð mistiltein með berum augum?) (X) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um (X) blásið sápukúlur (X) kveikt bál á ströndinni (X) komið óboðin/n í partý.. (sveigjanlegt...) ( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í (ég er svo ógeðslega skemmtilegur!) (X) farið á rúlluskauta/línuskauta (gekk nú ekkert sérlega vel) (X) hefur einhver óska þinna ræst ( ) farið í fallhlífastökk (sénsinn...) ( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (X) gert þig af þvílíku fífli fyrir framan fullt af fólki (well... it's in my nature) (X) farið nakin í sund (gerði kannski minnst af því að synda samt...) (X) rennt þér á grasinu á snjóþotu (Næstum því, hef verið í Hlíðafjalli um páska.) (X) logið fyrir vini þína ( ) fengið sms frá einhverjum sem þú veist ekkert hver er og byrjað að spjalla við manneskjuna (ég hef bara ekki svo mikinn frítíma (og er þessvegna að svara þessum listum))
[]
Dig it? | Röflað kl.20:04 | Word to tha muthafucka?
|